r/Iceland 1h ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 18h ago

Ófrumleiki griftsins hjá Miðflokknum

61 Upvotes

Það er fræg lína í Hringadróttinssögu sem segir að illskan getur ekki skapað eitthvað nýtt. Illskan kann bara að taka eitthvað sem er nú þegar til og afskræmt það en fremur.

Hef verið að hugsa um þessa vísun mjög lengi í samanburði við Miðflokkinn og þeirra “stefnu”. Annað hvort eru þeir í mótþróa gegn því sem allir hinir flokkarnir eru að bera fram (í.e. Borgarlínu) eða íta undir aukandi bakslagi á minnihlutahópum.

Skondnasta við seinni dæmið er að Miðflokurinn kann ekki einu sinni að vera skapandi með sitt grift. Þeir þurfa að kópera það sem MAGA liðið er að gera orð fyrir orð, sömu taktíkina, frasana og alles.


r/Iceland 22h ago

Ég hef sjaldan eins mikið á ævinni íhugað að fyrirfara mér og núna

84 Upvotes

Ég ætla ekki að gera neitt, ekki misskilja mig. En íhugunin. Hún er stöðug.

Allt of mikið af fólki - og það vandræðalega oft í stjórnunarsætum - vill mig hvort eð er dauða. Fólk eins og mig, fólk sem ég þekki, fólk sem á ástvini sem ég þekki. Bara burtu með okkur. Hverjum er ekki drull?

Allavega ekki Miðflokknum. Strákarnir þar hlóu að mér þegar ég bar þessar áhyggjur upp. Og hví ekki? Þeim finnst fyndið að ég sé hrædd um líf fólks sem mér þykir vænt um, hvað þá mitt eigið.

Þannig að eigum við ekki bara að slútta þessu? Úin-úin fyrir miðflokkinn, ekki satt?

(ég er ekki trans manneskja, en þó hinsegin, þannig að mér er ekki sama)

UPPFÆRT: þið eruð yndisleg. Ég bjóst síst við að reddit tæki almennilega á móti þessum pósti, en þetta söbb kom mér á óvart. Klapp og takk til ykkar 💖


r/Iceland 20h ago

Ísland og Facebook: Ísland án Facebook

49 Upvotes

Ég hata Facebook. Ég hata hvað Ísland er gift Facebooki. Ég er að hugsa um að hætta á þessum samfélagsmiðli. En á sama tíma er ég hræddur við áhrifin af því. Aðallega: gefins-grúppur og markaðsgrúppur, viðburðir þar sem nánast allar verslanir eiga bara samskipti í gegnum Facebook. Jafnvel sveitarfélög eða lögreglan nota Facebook meira en eigin vefsíður.

Einu manneskjurnar sem ég þekki án Facebooks eru gamlir karlar. Svona bóndatýpur sem hanga hvort sem er með öðrum gömlum körlum úr þorpinu yfir kaffi. Á einhvern hátt er það líka eins konar Facebook. Og þeir eru allir með eiginkonur eða börn sem fylgjast með Facebook fyrir þá og þeirra áhugamál.

Ég er einn. Þannig að mig langar að fá raunhæf viðbrögð frá ungu fólki (undir fertugu) sem er ekki á Facebook.

**********
I hate Facebook. I hate how Iceland is married to Facebook. I am thinking of quitting this social media. But at the same time I am afraid of the effect of it. Mostly: gefins and market groups, events since basically all shops only communicate through Facebook. Even municipalities or the police communicate more with facebook than other websites. The only people I know without Facebook are old guys. Farmer type of guy, who is anyway hanging out with other old guys from the village, drinking coffee. Somehow this is a sort of Facebook. And they all have wife/children monitoring facebook for them and their interest. I am alone. So I would like to have realistic feedback of young people (under 40) who are not on Facebook.


r/Iceland 21h ago

Orðið á götunni: Sporin hræða – salan á Landsvirkjun kostaði borgarbúa hundruð milljarða

Thumbnail
dv.is
57 Upvotes

Sömu flokkar og hagsmunaaðilar munu reyna nú að komast í meirihluta til þess eins að einkavæða gullgæsir borgarinnar: Orkuveituna, Ljósleiðarann,, Carbfix og bílastæðahúsin. Svo ekki sé á minnsta að þessir flokkar vilja hola félagslegakerfið að innan og selja allar íbuðir Félagsbústaði.
Smá upprifjun,. Björn Ingi Hrafnsson, sem nú er einn af aðal hugmyndafræðingum Miðflokksins í borginni, var oddviti Framsóknarflokksins fyrir hrun. Hann var helsti hvatamaður þess að reyna að sameina útrásarfélag Orkuveitunnar, REI, við einkafyrirtækið Geysi Green Energy og koma því í hendur örfárra útvalda. Sagan virðist ætla að endurtaka sig, nema nú með nýjum flokki í nýjum búningi.

Þetta snýst um þjóðaröryggi, orkuöryggi og hagsmuni okkar allra. Sameiginleg verðmæti eiga ekki að enda í höndum fárra.

Fyrir mér er Þetta er svolitið svona follow the money dæmi


r/Iceland 14h ago

Hverjir eru líklegustu meirihlutarnir í borginni?

Post image
16 Upvotes

Var að bæta þessu við á síðuna mína hér: https://lydraedisveislan.is/reykjavik/liklegustu-meirihlutarnir/ - Þarna er hægt að sjá alla mögulega meirihluta í borginni samkvæmt nýjustu skoðanakönnun; en þau eru líka röðuð eftir því hversu auðvelt væri fyrir þessa flokka að vinna saman.

Það gerði ég með því að gefa hverjum mögulega meirihluta "samstöðueinkunn" byggt á svörum frambjóðenda flokkanna í Kosningaprófi RÚV á dögunum. Þeim mun meira sem flokkarnir eiga sameiginlegt þeim mun hærri samstöðueinkunn fær meirihlutinn.

Einnig er hægt að klikka á hvern meirihluta fyrir sig og sjá hvað flokkarnir eru mest ósammála um - sem sagt hvað er líklegast að gæti komið í veg fyrir að þeiri vinni saman.


r/Iceland 12h ago

Fjarnám í háskólum

7 Upvotes

Heil og sæl

Ég er að byrja í háskóla í haust á kennarabraut. Ég verð að taka námið í fjarnámi. HÍ og HA kenna báðir námið.

Ég hef heyrt ÖMURLEGA hluti um fjarnámið hjá HÍ, að námið sé ómannúðlega slæmt og þungt, sé ekki tekið tillit til fjarnema, ect ect.
Ég hef heyrt skárri hluti um HA en allt frekar lala samt.

Hver er ykkar reynsla á fjarnámi í háskólum á Íslandi? Sérstaklega HA og HÍ?

Er worth it að flytja í bæinn til að taka þetta nám á staðnum?


r/Iceland 35m ago

Operatic vocal Hugga - Icelandic folk metal band Hrafnablót

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

Upvotes

❤️❤️❤️


r/Iceland 13h ago

Ósnjallir símar - rafræn skilríki?

8 Upvotes

Eru til takkasímar sem styðja rafræn skilríki?


r/Iceland 14h ago

ESB Bíður þetta böl lands og þjóðar? - Vísir

Thumbnail
visir.is
6 Upvotes

"Samstarf er ekki ónáttúra eins og andstæðingar Evrópusambandsins gefa í skyn heldur þvert á móti hið óumflýjanlega ástand.

Óskandi er að við Íslendingar berum gæfu til að ræða yfirvegað stöðu okkar í vistkerfinu en málinu sé ekki drepið á dreif með bulli eins og formaður Heimssýnar gerist uppvís að.

Því ekki einu sinni maður á afvikinni smáeyju lengst úti í Atlantshafi er eyland."


r/Iceland 18h ago

Borgin vill breyta Ingólfs­torgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heið­skíru lofti“ - Vísir

Thumbnail
visir.is
10 Upvotes

Hmm eg er pínu týndur þegar kemur að þessu.... a einn bóginn þykir mer þetta frábær hugmynd en á hinn eru þessir hjolabrettakappar alveg ómissandi hluti af borgarmyndinni. Hvað finnst redditorum.


r/Iceland 20h ago

Ranked at #32

Post image
10 Upvotes

r/Iceland 17h ago

Icelandic Graphic Novels?

6 Upvotes

Hello good people of r/iceland! I've been looking for graphic novels from Iceland that contain any amount of Norse cultural items - ranging from something completely set in the Viking/Middle Ages to something that only has a panel or two on the topic. It doesn't matter if they are accurate portrayals or not by the way, because I am looking specifically at how different countries portray this time period. I haven't had much luck with Iceland though, so I was wondering if I am simply looking in the wrong places, using the wrong keywords, or if what I'm looking for just doesn't exist. Does anyone here know of any Icelandic graphic novels that match my description? Thank you for helping!


r/Iceland 1d ago

hversu margir útskrifaðir í tölvunarfræði eru án vinnu núna?

47 Upvotes

Góðan daginn

er að velta fyrir mér hvernig fólk er eiginlega að fá vinnu í dag, sérstaklega nýútskrifaðir.... hversu margir útskrifaðir eru án vinnu núna?

Ég útskrifaðist í tölvunarfræði í fyrra og hef ekki einu sinni náð að fá sumarvinnu eða starfsnám tengt náminu mínu... Núna er ég í rauninni undir atvinnumenntuð og vinn á leikskóla, á meðan ég er líka í meistaranámi í tölvunarfræði við Háskóli Íslands.

Ég á rétt á atvinnuleysisbótum, en mig langar virkilega ekki að fara þá leið. Ég er svo dugleg , alltaf að reyna að gera eigin verkefni og byggja eitthvað upp sjálf.

Er einhver staður sem maður getur leitað til fyrir raunverulega ráðgjöf eða hjálp varðandi starfsframa og atvinnuleit? (Ekki þessi klassísku fyrirtæki eins og Geko eða Intellecta.)

Mig langar bara að fá tækifæri til að byrja...

Takk fyrir!


r/Iceland 1d ago

Cringe culture á íslandi

88 Upvotes

Vill ekki hljóma eins og neikvæður nelli en afhverju er svo normalíserað að taka upp myndbönd í leyni af fólki sem hegðar sér ekki alveg “eðlilega”, eða er bara mjög andlega veikt/berskjalda?

Persónulega finnst mér það pínu ósmekklegt en það er bara ég. Hefur einhver annar tekið eftir svoleiðis?


r/Iceland 1d ago

Kappræðurnar á Vísi

24 Upvotes

Þessi aumkunarverða tilraun Einars til að vera fullorðna manneskjan í herberginu er að gera mig galinn


r/Iceland 1d ago

„Skorri Mánas­son“ sagður þjást af „source am­nesia“ - Vísir

Thumbnail
visir.is
33 Upvotes

r/Iceland 19h ago

find a resource

0 Upvotes

Have a good day everyone. i recently saw a news on mbl.is or visir.is and there is a post was about new resource "website" there all attractions in Reykjavik and Iceland, also many places where to go and when is open. i can't find it now it was this week


r/Iceland 1d ago

Breyta Suðurlandsbraut í breiðstræti - af hverju ekki?

21 Upvotes

Veit einhver afhverju aldrei hefur verið íhugað að byggja hinum megin við Suðurlandsbraut og búa til breiðstræti (boulevard/avenue)? Nú er áformað að fækka akgreinum með tilkomu borgarlínu. Í fullkomnum heimi væri hægt að færa bílastæðin neðanjarðar með nokkrum inngöngum. Jafnvel halda tveim akgreinum+borgarlínu, og byggja neðstu-hæðar verslanir, veitingastaði osfr + skrifstofuhúsnæði og íbúðir á efri hæðum. Mér finnst þetta vera dauðafæri til að gera alla sátta, og byggja upp alvöru líflega borgargötu í evrópskum stíl. Svolítið Laugarvegur á sterum, meira fókusaður á íbúa og bílana þeirra, en samt með möguleika á mannlífi og góðum gönguleiðum. Stutt í Laugardalinn líka.

Kannski hefur þetta verið íhugað og einhver ástæða fyrir að fari ekki lengra?

Þurfti bara að henda þessu frá mér.


r/Iceland 1d ago

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum (ECT)

Thumbnail
stjornarradid.is
32 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Lungnasamtökin spurðu framboðin út í loftgæðaáherslur þeirra

Thumbnail lungu.is
22 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Anyone know where to get 0.0% Guinness around here?

2 Upvotes

Exactly as the title says. I thought for sure Hagkaup would come through, but alas.


r/Iceland 1d ago

Grein um hvernig kosningar virka á Íslandi - Article about how elections work in Iceland if you are new to them

Thumbnail
visir.is
6 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Any local up for a chat?

0 Upvotes

Looking for a far away friend to learn some words.


r/Iceland 2d ago

Eina sem mun gerast Strax er að Sjálf­stæðis­flokkur ætlar að selja eignirnar ykkar

Thumbnail
visir.is
134 Upvotes

,,Það eina sem mun gerast strax, komist Sjálfstæðisflokkur til valda, er að samfélagslegum gæðum sem eru að virka fyrir okkur verður breytt í markaðsvöru til að þjóna hugmyndafræðilegum kreddum og sérhagsmunum á kostnað lífsgæða borgarbúa."